Ferill 380. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 542  —  380. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um aðgerðir á ábyrgð ráðuneytisins gegn ofbeldi og afleiðingum þess.

Frá Andrési Inga Jónssyni.


     1.      Hvað hefur verið gert til að hrinda í framkvæmd þeim aðgerðum sem eru á ábyrgð ráðuneytisins í þingsályktun nr. 35/149, um áætlun fyrir árin 2019–2022 um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess? Svar óskast sundurliðað eftir aðgerðum og árum.
     2.      Hvaða fjármunum hefur verið varið til þeirra aðgerða? Svar óskast sundurliðað eftir aðgerðum og árum.


Skriflegt svar óskast.