Ferill 571. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1249 — 571. mál.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (íbúakosningar á vegum sveitarfélaga).
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
Á eftir 3. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Eftirfarandi breytingar verða á 108. gr. laganna:
a. Á eftir 1. málsl. 1. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Sveitarstjórn er heimilt að ákveða lægra hlutfall í samþykkt um stjórn sveitarfélags.
b. Í stað orðanna „hærra hlutfall“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: annað hlutfall.