Ferill 232. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Prentað upp.
Þingskjal 233 — 232. mál.
Breytt gerð.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um fjölgun starfsfólks og embættismanna.
Frá Helgu Völu Helgadóttur.
1. Hversu margt starfsfólk hefur verið ráðið til starfa hjá fjármála- og efnahagsráðuneyti frá því að ný ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tók við völdum 28. nóvember 2021? Svar óskast sundurliðað eftir því:
a. hvort um er að ræða skipun í embætti eða ráðningu,
b. hvort um er að ræða tímabundnar ráðningar/skipanir eða ótímabundnar,
c. hversu mörg ný störf er um að ræða.
2. Hversu margar stöður hafa verið auglýstar frá því í nóvember 2021? Svar óskast sundurliðað eftir því hvort um er að ræða skipun í embætti eða ráðningu.
3. Hver var fjöldi stöðugilda hjá fjármála- og efnahagsráðuneyti við skipan nýrrar ríkisstjórnar í nóvember 2017 samanborið við fjölda stöðugilda í september 2022? Hafi orðið breyting á málefnasviði ráðuneytisins á þessum tíma er óskað eftir að tilgreind sé breyting á starfsmannafjölda með tilliti til þess.
4. Hver er áætlaður viðbótarkostnaður vegna fjölgunar starfsfólks hjá fjármála- og efnahagsráðuneyti á kjörtímabilinu?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.