Ferill 512. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 628 — 512. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um fjölgun starfsfólks og embættismanna.
Frá Helgu Völu Helgadóttur.
1. Hversu margt starfsfólk hefur verið ráðið til starfa hjá forsætisráðuneyti frá því að ný ríkisstjórn tók við völdum 28. nóvember 2021? Svar óskast sundurliðað eftir því:
a. hvort um er að ræða skipun í embætti eða ráðningu,
b. hvort um er að ræða tímabundnar ráðningar/skipanir eða ótímabundnar,
c. hversu mörg ný störf er um að ræða.
2. Hversu margar stöður hafa verið auglýstar frá því í nóvember 2021? Svar óskast sundurliðað eftir því hvort um er að ræða skipun í embætti eða ráðningu.
3. Hver var fjöldi stöðugilda hjá forsætisráðuneyti við skipan nýrrar ríkisstjórnar í nóvember 2017 samanborið við fjölda stöðugilda í september 2022? Hafi orðið breyting á málefnasviði ráðuneytisins á þessum tíma er óskað eftir að tilgreind sé breyting á starfsmannafjölda með tilliti til þess.
4. Hver er áætlaður viðbótarkostnaður vegna fjölgunar starfsfólks hjá forsætisráðuneyti á kjörtímabilinu?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.