Ferill 518. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 634 — 518. mál.
Fyrirspurn
til matvælaráðherra um fjölgun starfsfólks og embættismanna.
Frá Helgu Völu Helgadóttur.
1. Hversu margt starfsfólk hefur verið ráðið til starfa hjá matvælaráðuneyti frá því að ný ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tók við völdum 28. nóvember 2021? Svar óskast sundurliðað eftir því:
a. hvort um er að ræða skipun í embætti eða ráðningu,
b. hvort um er að ræða tímabundnar ráðningar/skipanir eða ótímabundnar,
c. hversu mörg ný störf er um að ræða.
2. Hversu margar stöður hafa verið auglýstar frá því í nóvember 2021? Svar óskast sundurliðað eftir því hvort um er að ræða skipun í embætti eða ráðningu.
3. Hver er fjöldi stöðugilda á málefnasviðum matvælaráðuneytis samanborið við fjölda stöðugilda sömu málefnasviða í viðeigandi ráðuneytum í nóvember 2017?
4. Hver er áætlaður viðbótarkostnaður vegna fjölgunar starfsfólks hjá matvælaráðuneyti á kjörtímabilinu?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.