Ferill 532. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Prentað upp.

Þingskjal 775  —  532. mál.
Viðbót.

2. umræða.



Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 (framlenging á bráðabirgðaákvæði I).

Frá 2. minni hluta velferðarnefndar.


    Frumvarp þetta er enn eitt dæmið um skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar og sein viðbrögð við ábendingum NPA-miðstöðvarinnar og sveitarfélaganna um vanfjármögnun á þjónustu við fatlað fólk. Frumvarpið, sem fjallar um fjármögnun á NPA-þjónustu strax á næsta ári, barst ekki Alþingi fyrr en 2. desember. Fram að þessu hafa sveitarfélög, NPA-miðstöðin og að sjálfsögðu fatlað fólk lifað í óvissu um hve margir samningar verði gerðir strax á næsta ári. Þá hafa NPA-samtökin bent á það að jafnvel þótt kveðið sé á um það í frumvarpinu að tiltekinn fjöldi samninga verði gerður á árunum 2023 og 2024 fylgi frumvarpinu þó engin trygging fyrir því að svo verði gert. Þau bráðabirgðaákvæði sem renna út 1. janúar 2023 áttu að tryggja gerð 172 samninga en fjármagnið sem ríkisstjórnin hefur lagt til verkefnisins dugar ekki fyrir þeim fjölda. 2. minni hluti telur ástæðu til að vekja athygli á varnaðarorðum NPA-miðstöðvarinnar. Í umsögn samtakanna segir: „[M]eðalkostnaður NPA-samninga var 30,6 m.kr. árið 2021. Því má ætla að um vanáætlun sé að ræða í mati á áhrifum frumvarpsins sem gerir ráð fyrir að meðaltalskostnaður á samning séu 30 m.kr. fyrir árið 2023. Afar ólíklegt er því að þær 375 m.kr. sem mælt er fyrir um dugi til að mæta þeim 50 samningum sem gert er ráð fyrir að náð verði árið 2023 með framlaginu.“
    Það er gömul saga og ný að mæla fyrir um tiltekna þjónustu í lögum en koma í veg fyrir framkvæmd hennar með því að tryggja ekki viðhlítandi fjármagn í fjárlögum.
    Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga kemur fram að þar sem kostnaður við framkvæmd laganna sé í mörgum tilfellum langt umfram það sem gert var ráð fyrir í upphafi sé það krafa sveitarfélaga að ríkið fjármagni 30% verkefnisins í stað 25%. Sambandið tekur einnig fram að þegar hjúkrunar- eða umönnunarþörf er verulegur hluti kostnaðar við samninga þurfi að koma til aukið framlag frá heilbrigðiskerfinu til að mæta þeirri þörf. Eins og sambandið bendir á var í upphafi gert ráð fyrir að meðaltal samningsupphæða yrði um 13 m.kr. en samkvæmt tölum frá árinu 2021 var meðalkostnaður við samning 30,6 m.kr.
    Annar minni hluti tekur undir áhyggjur NPA-miðstöðvarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga um að meira fjármagn vanti frá ríkinu til að standa megi við gefin loforð um fjölda NPA-samninga. 2. minni hluti telur að fari svo að fjármunir dugi ekki fyrir þeim 50 samningum sem til stendur að gera þurfi að endurskoða fjárhæðir og tryggja viðbótarfjárheimild svo að tryggja megi gerð 145 samninga fyrir lok ársins 2023.
    Annar minni hluti leggur til að málið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:

    Orðin „allt að“ í báðum efnismálsliðum b-liðar 1. gr. falli brott.

Alþingi, 9. desember 2022.

Guðmundur Ingi Kristinsson.