Ferill 767. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1160  —  767. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um stöðu framkvæmda í Reykjavík vegna samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Hefur snjallvæðing umferðarljósa eða aðrar nýjar tæknilausnir verið innleiddar í Reykjavík í samræmi við ákvæði samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins?
     2.      Hver er staðan á breytingu gatnamóta Reykjanesbrautar og Bústaðavegar?
     3.      Hver er staðan á lagningu Arnarnesvegar og gatnamóta við Breiðholtsbraut?
     4.      Hvenær má vænta þess að uppbygging hefjist í Keldnalandi?
     5.      Hvernig hefur leiðakerfi Strætós verið bætt í Reykjavík frá undirritun samgöngusáttmálans árið 2019?