Ferill 847. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1308  —  847. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um ráðstafanir til að lækka eldsneytiskostnað í millilandaflugi.


Flm.: Anna Kolbrún Árnadóttir, Bergþór Ólason, Logi Einarsson.


    Alþingi ályktar að fela innviðaráðherra í samráði við fjármála- og efnahagsráðherra að undirbúa lagafrumvarp þar sem kveðið verði á um ráðstafanir sem leiði til þess að eldsneytisverð í millilandaflugi lækki.

Greinargerð.

    Þingsályktunartillaga þessi var áður flutt á 148. löggjafarþingi (488. mál), 149. löggjafarþingi (41. mál), 150. löggjafarþingi (359. mál) og 151. löggjafarþingi (123. mál) en náði ekki fram að ganga og er því endurflutt.
    Samkvæmt lögum um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara, nr. 103/1994, skal jafna flutningskostnað á olíuvörum eins og nánar er þar kveðið á um. Markmið laganna er að tryggja að eldsneytisverð sé hið sama um allt land til að jafna búsetuskilyrði og samkeppnisstöðu fyrirtækja.
    Jöfnun á flutningskostnaði á hins vegar ekki við um eldsneyti sem er ætlað til útflutnings og fellur þar undir eldsneyti til millilandaflugs og því er eldsneyti dýrara á millilandaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum heldur en í Keflavík og Reykjavík.
    Með tillögu þessari er lagt til að innviðaráðherra undirbúi í samráði við fjármála- og efnahagsráðherra lagafrumvarp í þá veru að breyting verði á til að verð á eldsneyti í millilandaflugi lækki. Slík breyting mundi styrkja stöðu ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og ýta undir dreifingu ferðamanna um landið enda gegna Akureyrarflugvöllur og Egilsstaðaflugvöllur hlutverki sem varaflugvellir líkt og Reykjavíkurflugvöllur gerir og eðlilegt að sama verð sé á eldsneyti á þessum þremur flugvöllum.