Ferill 862. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1354 — 862. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um tæknifrjóvganir og ófrjósemisaðgerðir.
Frá Hildi Sverrisdóttur.
1. Hvað tóku Sjúkratryggingar Íslands þátt í kostnaði við margar tæknifrjóvganir sem falla undir 3. gr. reglugerðar nr. 1239/2018 á árunum 2019–2022? Svar óskast sundurliðað eftir árum og endurgreiðsluhlutfalli Sjúkratrygginga.
2. Hver var kostnaður hins opinbera við tæknifrjóvganir sem falla undir 3. gr. reglugerðar nr. 1239/2018 á árunum 2019–2022? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
3. Hver var kostnaður hins sjúkratryggða við tæknifrjóvganir sem falla undir 3. gr. reglugerðar nr. 1239/2018 á árunum 2019–2022? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
4. Hversu margar ófrjósemisaðgerðir sem falla undir lög nr. 35/2019 voru framkvæmdar á Íslandi á árunum 2019–2022? Svar óskast sundurliðað eftir árum, kyni sjúklinga og tegund aðgerðar.
5. Hver var kostnaður hins opinbera við ófrjósemisaðgerðir sem falla undir lög nr. 35/2019 á árunum 2019–2022? Svar óskast sundurliðað eftir árum, kyni sjúklinga og tegund aðgerðar.
Skriflegt svar óskast.