Ferill 437. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1711 — 437. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Hönnu Katrínu Friðriksson um íbúðarhúsnæði í eigu einstaklinga og lögaðila.
1. Hversu mikið af íbúðarhúsnæði á landinu öllu er í eigu einstaklinga? Svar óskast sundurgreint í fimm flokka eftir fjölda eigna á hvern einstakling: ein eign, tvær eignir, þrjár eignir, fjórar eignir eða fleiri.
Svarið byggist á eftirfarandi forsendum:
a. Taldar eru fullbúnar íbúðir.
b. Séu eigendur fleiri en einn er íbúðin flokkuð eftir þeim eiganda sem á flestar íbúðir á landinu, með þeim fyrirvara að ef íbúð er bæði í eigu einstaklings og lögaðila telst hún eign lögaðila, sbr. forsendu b í svari við 2. tölul. fyrirspurnarinnar.
| Fjöldi eigna | Fjöldi íbúða | Hlutfall af heild |
| 1 | 92.859 | 60,9% |
| 2 | 22.769 | 14,9% |
| 3 | 7.291 | 4,8% |
| 4 | 2.128 | 1,4% |
| 5 | 1.291 | 0,8% |
| Alls | 126.338 | 82,9% |
2. Hversu mikið af íbúðarhúsnæði á landinu öllu er í eigu lögaðila?
Svarið byggist á eftirfarandi forsendum:
a. Taldar eru fullbúnar íbúðir.
b. Ef íbúð er bæði í eigu einstaklings og lögaðila telst hún í eigu lögaðila.
| Fjöldi íbúða | Hlutfall af heild | |
| Lögaðilar | 26.074 | 17,1% |