Ferill 1045. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2191 — 1045. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni um stöðu framkvæmda í samgönguáætlun.
Þingsályktanir um samgönguáætlun fyrir árin 2020–2034 og 2020–2024 voru samþykktar á Alþingi þann 29. júní 2020. Til að bregðast við efnahagslegum afleiðingum heimsfaraldurs COVID-19 var ráðist í sérstakt tímabundið fjárfestingarátak.
Alþingi samþykkti þann 31. maí 2021 þingsályktunartillögu frá umhverfis- og samgöngunefnd um breytingu á samgönguáætlun 2020–2024. Í greinargerð með þeirri tillögu sagði: „Til að bregðast við efnahagslegum afleiðingum faraldursins samþykkti Alþingi sérstakt tímabundið fjárfestingarátak, sbr. þingsályktun nr. 28/150, þess efnis að 6.506 millj. kr. yrði ráðstafað til framkvæmda við samgöngumannvirki til viðbótar því sem gert var ráð fyrir í samgönguáætlunum 2020–2034 og 2020–2024. Í meðförum nefndarinnar voru lagðar til breytingar til samræmis við efni fjárfestingarátaksins og lögð áhersla á að þeim verkefnum sem hrundið var af stað með því yrði tryggt fjármagn næstu ár þar sem mikilvægt væri að samfella yrði í framvindu framkvæmda.“
1. Hversu miklu fé hefur verið varið til hverrar framkvæmdar í fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020–2024 í samanburði við fyrirhuguð framlög í áætluninni?
Í samgönguáætlun 2020–2024 er gert ráð fyrir alls 54 verkefnum en auk þeirra eru fjölmörg verkefni sem unnið er að í tengslum við sameiginlega sjóði samgönguáætlunar, svo sem breikkun brúa og bundið slitlag á tengivegi. Auk þess er unnið að fjölmörgum verkefnum í tengslum við undirbúning verkefna utan áætlunar.
Í töflu 1 í fylgiskjali má sjá hvernig fjárveitingar til þessara 54 verkefna eru áætlaðar árin 2020–2024, áætlaður verktími ásamt kostnaði við þau verkefni á árunum 2020–2023. Einhver verkefnanna voru hafin á árunum fyrir 2020 og er ekki gerð grein fyrir kostnaði fyrri ára hér.
2. Hver er staða hverrar framkvæmdar í fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020–2024 í samanburði við fyrirhugaðan verktíma í áætluninni?
Í töflu 1 í fylgiskjali má sjá fyrirhugaðan verktíma í samgönguáætlun fyrir árin 2020–2024 í samanburði við stöðu hverrar framkvæmdar í maí 2023.
3. Á hvaða hönnunarstig er hver framkvæmd í samgönguáætlun fyrir árin 2020–2034 komin í samanburði við það hönnunarstig sem var lokið þegar þingsályktunin var samþykkt?
Í samgönguáætlun 2020–2034 var tilgreint áætlað hönnunarstig einstakra verkefna eins og það var áætlað þegar þingsályktunin var samþykkt. Í töflu 1 í fylgiskjali er gerð grein fyrir því hönnunarstigi sem áætlað var þegar samgönguáætlun var samþykkt og á hvaða hönnunarstigi verkefnin eru metin í maí 2023.
Í töflu 2 hér að aftan má sjá samantekt eftir hönnunarstigum, annars vegar í samgönguáætlun 2020–2034 og svo áætlað hönnunarstig í maí 2023.
Við samþykkt samgönguáætlunar voru alls 10 verkefni metin á verkhönnunarstigi, 4 verkefni á forhönnunarstigi, 24 verkefni á frumdragastigi, 5 verkefni á skilgreiningar-/frumdragastigi og 11 verkefni á skilgreiningarstigi.
Staðan í maí 2023 var þannig að 25 af þessum 54 verkefnum var lokið. 15 verkefni voru í framkvæmd, 7 voru á verkhönnunarstigi, 4 á forhönnunarstigi, 1 á frumdragastigi og 2 á skilgreiningarstigi. Af þessu má sjá að framgangur verkefnanna hefur verið góður og markvisst unnið að þessum verkefnum sem voru samþykkt í samgönguáætlun 2020–2034.
Nánari lýsingu á viðkomandi hönnunarstigum, þ.m.t. áætlaðri óvissu kostnaðaráætlana, má sjá í greinargerð með tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun 2020–2034.
Tafla 2. Hönnunarstig verkefna.
| Hönnunarstig | Áætlað hönnunarstig samkvæmt samgönguáætlun 2020–2034 | Staða í maí 2023 |
| Skilgreining | 11 | 2 |
| Skilgreining/frumdrög | 5 | 0 |
| Frumdrög | 24 | 1 |
| Forhönnun | 4 | 4 |
| Verkhönnun | 10 | 7 |
| Í framkvæmd | 15 | |
| Lokið | 54 | 25 |
Fylgiskjal.
Tafla 1. Yfirlit verkefna á samgönguáætlun 2020–2024.
www.althingi.is/altext/pdf/153/fylgiskjol/s2191-f_I.pdf