Ferill 1097. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2243  —  1097. mál.




Svar


háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um endurmat útgjalda.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hefur ráðuneytið innleitt endurmat útgjalda samkvæmt skilgreiningu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD)? Ef svo er, hvenær var það gert og hvaða árangri hefur það skilað?

    Í samræmi við 2. tölul. 4. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 6/2022, fellur verkefnið endurmat útgjalda (e. spending review) að hætti OECD, undir málefnasvið fjármála- og efnahagsráðuneytis. Frá stofnun háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis 1. febrúar 2022 hefur slíkt endurmat ekki farið fram svo kunnugt sé.
    Sjá umfjöllun hjá OECD um endurmat útgjalda:
     www.oecd.org/gov/budgeting/spending-reviews.htm