Ferill 997. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2234 — 997. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur um aðgerðaáætlun gegn hatursorðræðu.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver er ástæða þess að ráðherra hvarf frá því að leggja fram tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun gegn hatursorðræðu á yfirstandandi löggjafarþingi, sem áður var lögð fram á 153. löggjafarþingi (795. mál)? Hvenær stendur til að leggja tillöguna fram að nýju?
Tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar gegn hatursorðræðu fyrir árin 2023–2026 var lögð fram af fyrrverandi forsætisráðherra á 153. löggjafarþingi. Tillagan náði ekki fram að ganga og var málið í kjölfarið áfram til skoðunar í forsætisráðuneytinu. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að leggja tillöguna fram að nýju.