Ferill 129. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Prentað upp.
Þingskjal 129 — 129. mál.
Flutningsmenn.
Tillaga til þingsályktunar
um stofnun ríkisfélags um rafeldsneytisframleiðslu.
Flm.: Stefán Vagn Stefánsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Inga Sæland, Guðmundur Ingi Kristinsson, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Jakob Frímann Magnússon, Eyjólfur Ármannsson, Tómas A. Tómasson.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að taka til frumathugunar stofnun ríkisfélags um rafeldsneytisframleiðslu. Litið verði við þessa frumathugun til starfsemi Equinor í Noregi, fyrrum Statoil.
Greinargerð.
Tillaga þessi var áður lögð fram á 153. og 154. löggjafarþingi ( 9. mál) og er nú endurflutt óbreytt.
Leita þarf fleiri grænna orkugjafa til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Framleiðsla rafeldsneytis, sem gæti verið vetni, ammoníak, metanól eða metan, er grænt tækifæri sem bíður þess að verða nýtt. Talið er að framleiðsla rafeldsneytis á Íslandi gæti orðið ábatasöm og mikilvægt framlag í baráttunni gegn hlýnun loftslags.
Aðgengi að rafeldsneyti þarf að vera til staðar og til að framleiðslan geti orðið samkeppnishæf til framtíðar þarf hún að vera á hagstæðu verði. Eftirspurn eftir grænu vetni sem framleitt hefur verið með rafgreiningu vatns og endurnýjanlegri orku, samhliða markmiðum í loftslagsmálum, mun einungis fara vaxandi á komandi árum. Mikilvægi þess að Ísland geti orðið sjálfbært er kemur að öflun á rafeldsneyti er ótvírætt eins og núverandi ástand heimsmála sýnir svo rækilega. Sjálfbærni í orkuöflun er þjóðaröryggismál. Þjóðhagslegir hagsmunir eru fólgnir í því að framleiða innlenda orkugjafa til notkunar í orkuskiptum Íslendinga. Framtíðartækifæri eru mikil þegar kemur að framleiðslu á rafeldsneyti og hún styður við markmið um orkusjálfstæði Íslands.
Það eru ákveðin markmið sem snúa að kolefnishlutleysi og ætlun Íslendinga er að standast skuldbindingar í loftslagsmálum. Ásamt því að framleiða endurnýjanlega orkugjafa til að fullnægja þörfum innan lands liggja einnig gríðarleg tækifæri í að hefja útflutning á rafeldsneyti. Framleiðsla á rafeldsneyti er kostnaðarsöm aðgerð. Þótt framleiðsla á rafeldsneyti og sala sé hlutfallslega lítil nú er áhugi fjárfesta mikill. Ákveðin tækifæri felast í því að fjármagna framleiðsluna þegar markaðir eru orðnir tryggir. Á heimsvísu er gert ráð fyrir því að kostnaðarliðir fari lækkandi á næstu árum. Á Íslandi gefst við framleiðslu rafeldsneytis tækifæri til að nýta mögulega árstíðabundna umframorku og hámarka arðsemi af henni.
Með stofnun ríkisfélags um rafeldsneytisframleiðslu sem yrði í meirihlutaeigu ríkisins er tryggt að stærstur hluti ábata af framleiðslunni renni til þjóðarinnar. Ef horft er til Noregs og stofnunar ríkisolíufélagsins Statoil árið 1972 ætti öllum að vera ljós ábati norska ríkisins af þeirri ákvörðun. Norski olíusjóðurinn er einn hinn stærsti í heimi og hefur gerbreytt stöðu Norðmanna við uppbyggingu innviða og þjónustu við íbúa um allan Noreg. Íslendingar eru í kjörstöðu til að nýta auðlindir sínar til framleiðslu rafeldsneytis, bæði fyrir innanlandsframleiðslu og mögulega til útflutnings, og styrkja þannig tekjustofna ríkissjóðs. Má velta því upp hvort tekjur af slíku fyrirtæki ættu að renna í samfélagssjóð líkt og Norðmenn hafa stofnað í tengslum við olíuvinnslu sína.
Til að stofnun ríkisfélags um rafeldsneytisframleiðslu geti orðið að veruleika skiptir stuðningur og aðgerðir opinberra aðila og nýsköpunarsjóða afar miklu máli svo að möguleiki sé að skapa það umhverfi sem best verður á kosið og styðja við þróun tækni og lausna.
Við á Íslandi erum í sterkri stöðu til orkuskipta. Þar af leiðandi þarf að gæta þess að tækifærin sem liggja fyrir í þessum málaflokki renni okkur ekki úr greipum. Tæknin er til staðar og það ber að nýta hana í þágu þjóðarinnar.