Ferill 151. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 151  —  151. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, nr. 160/2008 (heiti stofnunar).

Flm.: Inga Sæland, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jakob Frímann Magnússon, Tómas A. Tómasson.


1. gr.

    Í stað orðanna „þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu“ í 1. mgr. 1. gr. laganna kemur: Sjónstöðina.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. a laganna:
     a.      Í stað orðanna „Þjónustu- og þekkingarmiðstöð“ í 1. mgr. kemur: Sjónstöðin.
     b.      Í stað orðsins „Miðstöðin“ í 2. mgr. kemur: Stofnunin.
     c.      3. mgr. orðast svo:
                  Rísi ágreiningur um ákvörðun skv. 1.–2. mgr. er heimilt að kæra ákvörðunina til ráðuneytisins.

3. gr.

    Heiti laganna verður: Lög um Sjónstöðina.

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Frumvarp þetta var áður lagt fram á 152., 153. og 154. löggjafarþingi ( 76. mál) en náði ekki fram að ganga. Það er nú lagt fram að nýju óbreytt. Umsagnir bárust um frumvarpið á 152. löggjafarþingi frá bæði starfsmönnum og stjórnendum stofnunarinnar sem frumvarpið tekur til, Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Umsagnaraðilar fögnuðu allir markmiði frumvarpsins og mæltu með samþykki þess. Þjónustu- og þekkingarmiðstöðin ítrekaði stuðning sinn við frumvarpið með umsögn sem barst á 154. löggjafarþingi. Auk þess barst umsögn frá Blindrafélaginu á 154. löggjafarþingi þar sem lýst var yfir stuðningi við frumvarpið.
    Í frumvarpi þessu er lagt til að heiti þeirrar stofnunar sem sinnir þjónustu við blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu verði breytt. Stofnunin heitir nú því óþjála heiti Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Heiti stofnunarinnar er því þrettán orð og rúmlega 90 bókstafir. Lengst af hét þessi stofnun lögum samkvæmt Þjónustu- og endurhæfingarstöð sjónskertra en gekk undir nafninu Sjónstöðin. Við endurskoðun laga í gegnum árin hefur heitið ítrekað tekið breytingum og stafafjöldinn aukist. Það tíðkast almennt ekki í heiti annarra stofnana að telja upp hvert og eitt einasta viðfangsefni viðkomandi stofnunar. Því er engin ástæða til að beita þeirri aðferð einungis gagnvart þessari stofnun. Nú er kominn tími til að gefa stofnuninni venjulegt heiti. Nafnið Sjónstöðin lýsir vel hlutverki stofnunarinnar, þ.e. að aðstoða þá sem eru blindir, sjónskertir eða með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Auk þess kannast margir við heitið, enda var starfrækt Sjónstöð frá árinu 1987 til ársins 2008.