Ferill 27. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 27 — 27. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið, nr. 34/1944 (notkun fána á byggingum).
Flm.: Guðrún Hafsteinsdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Vilhjálmur Árnason.
1. gr.
Við 7. gr. laganna bætist ný málsgrein, sem verður 1. mgr., svohljóðandi:
Tjúgufáninn skal dreginn á stöng alla daga ársins á Alþingishúsinu og Stjórnarráðshúsinu kl. 8 að morgni og vera við hún til kl. 21 að kvöldi. Þessa fána skal lýsa upp í skammdeginu.
2. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. desember 2025.
Greinargerð.
Frumvarp þetta var áður flutt á 148. löggjafarþingi (
459. mál), 149. löggjafarþingi (31. mál), 150. löggjafarþingi (325. mál), 154. löggjafarþingi (89. mál) og 155. löggjafarþingi (101. mál) af Birgi Þórarinssyni en hlaut ekki afgreiðslu. Í fyrri útgáfum frumvarpsins var einnig kveðið á um að flaggað skyldi með sama hætti við byggingu Hæstaréttar Íslands, embættisbústað forseta Íslands og skrifstofu hans í Reykjavík en gerðar hafa verið breytingar á frumvarpinu með tilliti til athugasemda sem bárust. Með frumvarpinu er lagt til að flaggað verði alla daga ársins frá kl. 8 að morgni til kl. 21 að kvöldi á Alþingishúsinu og Stjórnarráðshúsinu og að fáninn verði lýstur upp í skammdeginu.