Ferill 178. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 194 — 178. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um kostnað ÁTVR vegna dómsmála.
Frá Bryndísi Haraldsdóttur.
1. Hver var kostnaður Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) og eftir atvikum íslenska ríkisins af rekstri máls sem lauk með dómi Hæstaréttar nr. 19/2024 sem kveðinn var upp 4. desember 2024?
2. Hver var kostnaður ÁTVR og eftir atvikum íslenska ríkisins af rekstri máls sem lauk með dómi Landsréttar nr. 535/2023 sem kveðinn var upp 20. febrúar 2025?
3. Hefur ÁTVR tekið þær vörur sem um ræddi í þessum dómsmálum til sölu? Ef ekki, hver er ástæða þess og er það með samþykki ráðherra?
4. Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að Dista ehf. fái það tjón bætt sem leiddi af ólögmætum ákvörðunum ÁTVR? Ef ekki, hvers vegna ekki?
Óskað er eftir sundurliðuðum kostnaðarupplýsingum, skipt eftir eðli útgjalda og eftir dómstigum.
Skriflegt svar óskast.