Ferill 390. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 680  —  390. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Njáli Trausta Friðbertssyni um kostnað vegna umsókna um alþjóðlega vernd.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver hefur verið árlegur heildarkostnaður ráðuneytisins og stofnana þess frá árinu 2015 vegna umsókna um alþjóðlega vernd? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum, verkefnum, úrræðum og öðru sem við á, þ.m.t. vegna endurgreiðslna skv. 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, vegna innflytjendaráðs, móttöku flóttamanna og þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd.

    Í eftirfarandi töflu má sjá árlegan heildarkostnað vegna þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd frá árinu 2022 en þá tók félags- og húsnæðismálaráðuneytið við umræddri þjónustu. Fyrir þann tíma féll ekki til kostnaður hjá ráðuneytinu eða stofnunum þess vegna umsókna um alþjóðlega vernd. Vinnumálastofnun fer með framkvæmd umræddrar þjónustu og því fellur kostnaður vegna þjónustunnar ekki á aðrar stofnanir ráðuneytisins.
    Í töflunni er hvorki að finna upplýsingar um kostnað ráðuneytisins og stofnana þess vegna endurgreiðslna til sveitarfélaga á grundvelli 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, né vegna innflytjendaráðs eða móttöku flóttamanna þar sem sá kostnaður telst ekki til kostnaðar vegna umsókna um alþjóðlega vernd.

2022 2023 2024
4.743.735.459 kr. 10.828.351.578 kr. 10.599.484.592 kr.
Heimild: Vinnumálastofnun.