Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 797, 156. löggjafarþing 213. mál: kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík o.fl. (framlenging fresta).
Lög nr. 43 2. júlí 2025.

Lög um breytingu á lögum um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík og lögum um stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga (framlenging fresta).


I. KAFLI
Breyting á lögum um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík, nr. 16/2024.

1. gr.

     Í stað dagsetningarinnar „1. apríl 2025“ í 1. og 2. málsl. ákvæðis til bráðabirgða IV í lögunum kemur: 1. janúar 2026.

II. KAFLI
Breyting á lögum um stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga, nr. 130/2024.

2. gr.

     Í stað ártalsins „2025“ í inngangsmálslið 1. mgr. 4. gr. laganna kemur: 2026.

3. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 30. júní 2025.