Ferill 428. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 859 — 428. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um atvinnuleysisbætur til erlendra ríkisborgara.
1. Hversu hárri fjárhæð námu atvinnuleysisbætur árin 2020–2025?
Í töflu 1 má sjá heildarfjárhæð greiddra atvinnuleysisbóta á árunum 2020–2025.
| Tafla 1. | |
| Ár | Fjárhæð greiddra atvinnuleysisbóta |
| 2020 | 54.439.494.613 |
| 2021 | 53.940.931.967 |
| 2022 | 27.148.906.675 |
| 2023 | 23.738.618.494 |
| 2024 | 29.242.005.993 |
| 2025 | 34.505.472.772 |
| Heimild: Vinnumálastofnun. | |
2. Hvernig skiptust atvinnuleysisbæturnar eftir kyni og aldri?
Í töflu 2 má sjá hvernig greiddar atvinnuleysisbætur skiptust eftir kyni og aldri þeirra sem fengu slíkar greiðslur á árunum 2020–2025.
Tafla 2.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Vinnumálastofnun.
3. Hversu há fjárhæð rann til erlendra ríkisborgara?
Í töflu 3 má sjá heildarfjárhæð greiddra atvinnuleysisbóta til erlendra ríkisborgara á árunum 2020–2025.
| Tafla 3 | |
| Ár | Fjárhæð greiddra atvinnuleysisbóta til erlendra ríkisborgara |
| 2020 | 21.003.637.740 |
| 2021 | 20.977.172.705 |
| 2022 | 11.593.364.667 |
| 2023 | 11.532.854.473 |
| 2024 | 15.700.998.045 |
| 2025 | 19.565.621.839 |
| Heimild: Vinnumálastofnun. | |
4. Hversu há fjárhæð rann þar af til útlendinga með alþjóðlega vernd og umsækjenda um alþjóðlega vernd?
5. Hvernig skiptist ríkisfang tveggja fyrrgreindra hópa eftir löndum?
6. Hversu hátt hlutfall beggja fyrrgreindra hópa fékk atvinnuleysisbætur árin 2020–2025?
7. Hver hafði meðaldvalartími bótaþeganna verið þegar þeir fengu fyrst atvinnuleysisbætur?
8. Hver var meðaltími bótagreiðslnanna?
Meðal almennra skilyrða fyrir atvinnuleysistryggingum er að launamaður eða sjálfstætt starfandi einstaklingur hafi heimild til að ráða sig til vinnu hér á landi án takmarkana, sbr. d-lið 1. mgr. 13. gr. og d-lið 1. mgr. 18. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar. Þar er um að ræða íslenska ríkisborgara og þá sem hafa leyfi til að starfa á innlendum vinnumarkaði án takmarkana eða hafa verið undanþegnir kröfu um sérstök leyfi til að starfa hér á landi samkvæmt íslenskum lögum. Í ljósi framangreinds uppfylla umsækjendur um alþjóðlega vernd ekki almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum.
Vinnumálastofnun greinir ekki greiðslur atvinnuleysistrygginga eftir því hvers konar dvalarleyfi atvinnuleitendum frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins hefur verið veitt hér á landi og því liggja ekki fyrir upplýsingar um hve há fjárhæð af heildarfjárhæð atvinnuleysistrygginga hefur runnið til atvinnuleitenda sem fengið hafa alþjóðlega vernd hér á landi. Í ljósi þess liggur hvorki fyrir greining á ríkisfangi atvinnuleitenda, sem fengið hafa alþjóðlega vernd hér á landi, eftir löndum né hve hátt hlutfall fyrrnefndra atvinnuleitenda nýtti rétt sinn til atvinnuleysistrygginga á því tímabili sem um er spurt eða hver meðaltími greiðslna til hópsins var á tímabilinu. Enn fremur hefur Vinnumálastofnun ekki upplýsingar um hver meðaldvalartími fyrrnefndra atvinnuleitenda hefur verið þegar þeir hafa fyrst nýtt rétt sinn til atvinnuleysistrygginga. Þá liggja ekki fyrir hjá Vinnumálastofnun upplýsingar um dvalartíma einstaklinga hér á landi áður en þeir sækja fyrst um greiðslu atvinnuleysistrygginga.