Ferill 146. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 146 — 146. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um greiðsluþátttöku vegna veikinda og slysa utan EES.
Frá Árna Helgasyni.
2. Hvernig er komið til móts við þá hættu að hópur Íslendinga geti orðið ótryggður á ferðalögum utan EES vegna breytinganna?
3. Hve oft á árunum 2016–2025 kom til greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands vegna veikinda og slysa utan EES? Svar óskast sundurliðað eftir árum og upphæð hvers árs. Enn fremur er þess óskað að sundurliðunin geymi upplýsingar um hæstu einstöku greiðslu hvers árs á sama tímabili.
4. Liggur fyrir mat á sparnaði sem hlýst af því að hætta greiðsluþátttöku í sjúkrakostnaði einstaklinga með undirliggjandi og langvinna sjúkdóma sem hafa fengið greitt vegna veikinda og slysa utan EES?
5. Hyggst ráðherra grípa til ráðstafana til að bæta stöðu sjúklinga með undirliggjandi sjúkdóma sem gætu þurft að greiða háar fjárhæðir vegna veikinda og slysa utan EES, sbr. reglugerð nr. 760/2026 um endurgreiðslu kostnaðar vegna veikinda og slysa erlendis? Ef svo er, hvernig?
Skriflegt svar óskast.