Ferill 148. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 148  —  148. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996 (staða sóttvarnalæknis).

Frá velferðarnefnd.


1. gr.

    Á eftir orðinu „óperustjóra“ í 2. málsl. 1. mgr. 39. gr. laganna kemur: sóttvarnalæknis.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Sóttvarnalög, nr. 40/2026, tóku gildi 1. september sl. Þar er í 1. mgr. 5. gr. kveðið á um að heilbrigðisráðherra skipi sóttvarnalækni til fimm ára í senn. Í 3. mgr. sömu greinar er tekið fram að sóttvarnalæknir starfi innan embættis landlæknis. Ekki er gert ráð fyrir að sóttvarnalæknir verði forstöðumaður stofnunar og um hann gildi 39. gr. a laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, en við vinnslu og afgreiðslu frumvarps til sóttvarnalaga láðist að breyta samhliða lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Í 39. gr. þeirra laga er tilgreint að um laun og önnur starfskjör tiltekinna embættismanna fari eftir kjarasamningum stéttarfélaga eða samtaka þeirra við ríkið.
    Með þessu frumvarpi er því lagt til að bæta sóttvarnalækni við í upptalningu í 2. málsl. 1. mgr. 39. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.