Ferill 329. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 419 — 329. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (tekjuskattur, tollar o.fl.).
Frá fjármála- og efnahagsráðherra.
I. KAFLI
Breyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003.
1. gr.
a. Í stað 4. og 5. málsl. koma níu nýir málsliðir, svohljóðandi: Ríkisskattstjóri skal afskrá aðila vegna þeirra ára sem skilyrði skráningar voru ekki uppfyllt, enda hafi skráningin byggst á röngum eða villandi upplýsingum um starfsemi hans sem höfðu verulega þýðingu fyrir mat á skilyrðunum. Afskráning skal jafnframt eiga sér stað vegna þeirra ára sem styrkjum hefur verið ráðstafað til annarra málefna en getið er í 4. tölul. nema um óverulega ráðstöfun sé að ræða. Þegar metið er hvort komi til afskráningar telst sannanlegur og eðlilegur kostnaður við almannaheillastarfsemina, þar á meðal vegna launa, húsnæðis, búnaðar, fjáröflunar og nauðsynlegrar umsýslu, ráðstöfun í þágu hennar, að virtri raunverulegri ráðstöfun til almannaheilla. Áður en ákvörðun um afskráningu er tekin skal veita aðila leiðbeiningar og hæfilegan frest til að bæta úr annmörkum sem unnt er að leiðrétta nema það sé bersýnilega tilgangslaust. Hafi aðili bætt að fullu úr annmörkunum innan frestsins kemur ekki til afskráningar. Þrátt fyrir 4. og 5. tölul. skal vegna rangra eða villandi upplýsinga tekjufæra styrki sem mótteknir voru á þeim árum sem skilyrði skráningar voru ekki uppfyllt, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 61. gr., að frádregnum sannanlegum kostnaði við öflun þeirra og sannanlegum framlögum til málefna skv. 4. tölul. Hafi styrkjum verið ráðstafað til annarra málefna en skv. 4. tölul. skal tekjufæra þann hluta styrkja sem ráðstafað var með óheimilum hætti á ráðstöfunarárinu, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 61. gr., óháð móttökuári. Beita skal 25% álagi á þannig ákvarðaðan tekjuskattsstofn hvers árs. Heimilt er að fella niður álag færi aðili rök fyrir því að honum verði ekki kennt um annmarkana eða ráðstöfunina, ef sérstakar ástæður mæla með því, einkum afsakanleg mistök eða réttmætur vafi um túlkun reglna, að teknu tilliti til eðlis og alvarleika annmarkanna og úrbóta að eigin frumkvæði.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ákvörðun ríkisskattstjóra samkvæmt þessum tölulið um synjun skráningar, afskráningu, tekjuskattsstofn eða álag er kæranleg til yfirskattanefndar innan 30 daga frá dagsetningu ákvörðunar.
2. gr.
3. gr.
a. 3. tölul. orðast svo: Tekjur skv. 4. tölul. A-liðar 7. gr. sem skattfrjálsar eru samkvæmt sérlögum eða vinninga í happdrættum sem fengið hafa leyfi samkvæmt lögum um happdrætti. Sama gildir um vinninga í happdrættum sem fengið hafa sambærilegt leyfi útgefið af stjórnvöldum á hinu Evrópska efnahagssvæði, í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum, enda séu skilyrði til veitingu leyfis samkvæmt lögum um happdrætti uppfyllt.
b. Á eftir orðunum „Gjafir og framlög“ í 1. málsl. 7. tölul. kemur: í reiðufé.
4. gr.
a. Á eftir orðunum „Einstakar gjafir og framlög“ í 1. málsl. kemur: í reiðufé.
b. Á eftir 1. málsl. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Þrátt fyrir kröfu um að framlög séu í reiðufé falla hér eftir atvikum undir framlög í formi lausafjár, þ.e. einstakra gjafa. Við þær aðstæður að virði einstaks hlutar nemi hærri fjárhæð en 2.000.000 kr. skal það verðmat staðfest af löggiltum endurskoðanda enda sé ekki til að dreifa fullnægjandi fylgiskjölum um verðmæti hvers hlutar, svo sem kaup- eða sölureikningum, dagsettum innan tólf mánaða frá veitingu gjafar eða framlags.
5. gr.
II. KAFLI
Breyting á lögum um bindandi álit í skattamálum, nr. 91/1998.
6. gr.
a. Í stað orðanna „getur tekið“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: tekur.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Lög þessi taka ekki til álitaefna eða ákvarðana sem lúta að tollamálum eða annarra ákvarðana tollyfirvalda. Um heimild til að óska bindandi álits tollyfirvalda um tollflokkun og uppruna vöru fer samkvæmt tollalögum.
7. gr.
8. gr.
a. Á eftir orðinu „barst“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: eða móttöku viðbótargagna.
b. Á eftir 1. málsl. 2. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Dæmi um aðrar ástæður skv. 1. málsl. eru matskennd atriði, svo sem mat á verði eða verðmætum í viðskiptum eða ályktanir byggðar á óvissri sönnunarfærslu um staðreyndir, aðstæður eða atvik máls. Einnig beiðni um forúrskurð, svo sem um almenna skráningarskyldu þegar lög kveða á um slíkt innan tiltekins tíma frá því að starfsemi hefst. Sama á við um beiðni um forúrskurð vegna umsókna, þ.m.t. um samsköttun félaga, afbrigðilegt reikningsár, dreifingu á tekjufærslu, mögulega endurgreiðslu eða lækkun á skattstofnum.
9. gr.
III. KAFLI
Breyting á lögum um fjársýsluskatt, nr. 165/2011.
10. gr.
IV. KAFLI
Breyting á lögum um yfirskattanefnd, nr. 30/1992.
11. gr.
Yfirskattanefnd úrskurðar í kærumálum vegna skatta, gjalda og sekta sem álagðar eru eða ákvarðaðar af ríkisskattstjóra, þ.m.t. skattrannsóknarstjóra. Yfirskattanefnd skal og úrskurða í kærumálum vegna þeirra ákvarðana tollyfirvalda sem greinir í 118. gr. tollalaga, nr. 88/2005. Jafnframt tekur úrskurðarvald yfirskattanefndar til annarra ákvarðana ríkisskattstjóra og tollyfirvalda eftir því sem sérstaklega er mælt fyrir um í lögum.
Yfirskattanefnd skal úrskurða í kærumálum vegna ákvörðunar skatta og gjalda sem lögð eru á eða ákvörðuð af öðrum stjórnvöldum en greinir í 1. mgr. eftir því sem ákveðið er í lögum.
12. gr.
13. gr.
Við málsmeðferð á kærum vegna sektarákvarðana skattrannsóknarstjóra vegna brota á skattalögum, lögum um bókhald og lögum um ársreikninga skal eftir atvikum gæta ákvæða laga um meðferð sakamála og kemur þá skattrannsóknarstjóri fram af hálfu ríkisskattstjóra. Stjórnvaldssektir sem lagðar eru á eða ákvarðaðar eru af ríkisskattstjóra, svo sem dagsektir, sæta almennri málsmeðferð.
14. gr.
V. KAFLI
Breyting á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988.
15. gr.
16. gr.
a. 1. málsl. 2. mgr. fellur brott.
b. 4. og 5. málsl. 4. mgr. falla brott.
VI. KAFLI
Breyting á lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, nr. 94/1996.
17. gr.
a. 1. málsl. 2. mgr. fellur brott.
b. 4. og 5. málsl. 4. mgr. falla brott.
VII. KAFLI
Breyting á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987.
18. gr.
VIII. KAFLI
Breytinga á tollalögum, nr. 88/2005.
19. gr.
20. gr.
Þrátt fyrir 2. mgr. 104. gr. er leyfishöfum tollfrjálsrar verslunar sem fyrir 1. janúar 2027 hafa fengið starfsleyfi skv. 101. gr. og reka verslun fyrir komu- og brottfararfarþega í sama sölurými hinn 1. janúar 2027, heimilt að halda áfram slíkri starfsemi á þeim flugvelli fram til 1. janúar 2032. Leyfishafa ber að tryggja að sala til komu- og brottfararfarþega sé skráð á aðgreindan hátt.
IX. KAFLI
Breyting á búvörulögum, nr. 99/1993.
21. gr.
22. gr.
Ákvæði 1. gr. kemur fyrst til framkvæmda vegna tekjuársins 2027.
Ákvæði 2.–4. gr. koma til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda 2028 vegna tekna 2027.
Greinargerð.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.