14.12.1978
Efri deild: 27. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1553 í B-deild Alþingistíðinda. (1035)

8. mál, niðurfærsla vöruverðs

Frsm. meiri hl. (Jón Helgason):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um niðurfærslu vöruverðs og verðbótavísitölu í september 1978, sem flutt er til staðfestingar á brbl. sem sett voru 1. sept. s.l.

Efni brbl. er ákvæði um að sú aukning niðurgreiðslu, sem ákveðin var í byrjun september, skuli koma til frádráttar verðlagi í byrjun ágúst þegar kauplagsnefnd reiknaði verðbótavísitölu. Eins og fram kom í framsöguræðu hæstv. forsrh. er slík lagasetning ekki nýmæli. Allt frá árinu 1970, þegar ríkisstj. Jóhanns Hafstein beitti sér fyrir slíkum lögum, hefur þetta átt sér stað.

Á fund n. kom Jón Sigurðsson forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar og svaraði spurningum um það, hvernig líklegast væri að þróun verðlags og kaupgjalds hefði orðið ef lög nr. 3/1978, um efnahagsráðstafanir, hefðu haldið gildu sínu óbreytt, og öðrum spurningum sem fram voru bornar.

N. varð ekki sammála um afgreiðslu þessa máls. Meiri hl. leggur til að það verði samþ. óbreytt, en minni hl. skilar séráliti. Geir Gunnarsson var fjarstaddur við afgreiðslu málsins.