08.05.1979
Efri deild: 91. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4476 í B-deild Alþingistíðinda. (3564)
147. mál, verðgildi íslensks gjaldmiðils
Frsm. meiri hl. (Jón Helgason):
Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um breytt verðgildi íslensks gjaldmiðils. Á fund n. komu bankastjórar Seðlabankans, Jóhannes Nordal og Guðmundur Hjartarson, og gerðu nánari grein fyrir efni frv. N. hefur ekki orðið sammála um afgreiðslu málsins. Meiri hl. leggur til að frv. verði samþ. með þeirri brtt. sem fram kemur á þskj. 623, sem er á þá leið að í stað þess að lögin öðlist gildi 1. jan. 1980 verði það 1. jan. 1981, en minni hl. mun gera grein fyrir afstöðu sinni.
Tveir nm. meiri hl., þeir Ágúst Einarsson og Kari Steinar Guðnason, áskilja sér rétt til að flytja og fylgja brtt. um nafn hins nýja gjaldmiðils.