22.05.1979
Efri deild: 115. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5268 í B-deild Alþingistíðinda. (4667)

275. mál, skipan gjaldeyris- og viðskiptamála

Frsm. meiri hl. (Jón Helgason):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um skipan gjaldeyris- og viðskiptamála. Á fund n. kom fulltrúi frá Verslunarráði Íslands, aðstoðarbankastjóri Seðlabankans og bankastjóri Útvegsbanka Íslands. Enn fremur barst n. umsögn frá bankastjórn Landsbanka Íslands. N. varð ekki sammála um afgreiðslu málsins. Meiri hl. leggur til að frv. verði samþ. óbreytt. Minni hl. vill að frv. verði fellt.