15.11.1978
Efri deild: 15. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 624 í B-deild Alþingistíðinda. (492)

38. mál, verðlag

Frsm. meiri hl. (Jón Helgason):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til 1. um breyt. á lögum um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti. N. varð ekki sammála um afgreiðslu málsins. Meiri hl. n. mælir með að frv. verði samþykkt óbreytt, en minni hl. skilar séráliti, þar sem hann gerir grein fyrir afstöðu sinni. Fjarverandi við afgreiðslu málsins var Ágúst Einarsson.

Við afgreiðslu þessara laga á s.l. vori kom það fram í fjh.- og viðskn. frá verðlagsstjóra, að sá frestur, sem gert er ráð fyrir til gildistöku laganna, væri mjög skammur ef ætti að ljúka viðunandi undirbúningi á þeim tíma, þar sem lögin gera ráð fyrir mjög umfangsmiklum breytingum á verðlagseftirliti. Hins vegar var lagt mjög mikið kapp á að þessi lög gætu komist til framkvæmda sem fyrst, þar sem álitið var að samþykkt þeirra væri til ótvíræðra bóta frá því sem nú er, enda margvísleg nýmæli í þeim. En eins og kom fram hjá hæstv. viðskrh. áðan, þá fór svo á s.l. sumri að ekki var unnið að því að koma þeim til framkvæmda eins og skyldi, þannig að nú þegar þau eiga að taka gildi á morgun er þessum undirbúningi hvergi nærri lokið, réttara sagt, að hann er mjög skammt á veg kominn. Þess vegna er óumflýjanlegt að veita þarna nýjan frest, og þá hefur verið miðað við það, sem gert var ráð fyrir í upphafi við samningu frv., að það yrði nálægt einu ári.

Meiri hl. leggur til að þetta frv. verði samþ. óbreytt.