02.12.1980
Sameinað þing: 27. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1048 í B-deild Alþingistíðinda. (963)

355. mál, tilkynningarskylda íslenskra skipa

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég vil endurtaka það sem ég sagði áðan, að hér er um öryggismál að ræða og ber ekki að fórna þar neinu. En ég vil taka undir það sem hv. síðasti ræðumaður sagði: Ég held að það sé dálítið varasamt að vísa á bug fjarstýrðum stöðvum. Í svari mínu sagði ég að aukið yrði öryggi m.a. með fjarstýrðum tækjum. Ég vil vekja athygli á því, að með því radíósambandi, sem verið er að setja nú á frá Stykkishólmi að Kleifaheiði, er fjölgað línum á því svæði, ef ég man rétt, úr 12 í yfir 100. Þar er því orðin allt önnur aðstaða en áður var. Ég skal með ánægju grennslast eftir því hjá Pósti og síma, hvort ætla megi að öryggi sé á einhvern máta fórnað með þessu. En ég held að það séu svo gífurlega miklar framfarir í þessum fjarskiptum að ekki beri að hafna fjarstýrðum stöðvum nánast nafnsins eins vegna, af því að þær eru fjarstýrðar.

En ég skal með ánægju — og tel það skyldu mína reyndar — grennslast fyrir um hvort einhverju sé með þessu móti fórnað.