17.12.1981
Neðri deild: 26. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1741 í B-deild Alþingistíðinda. (1386)

75. mál, aðstoð í skattamálum

Frsm. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur tekið til meðferðar frv. til l. um heimild fyrir ríkisstj. til að staðfesta fyrir Íslands hönd viðbótarsamning við Norðurlandasamning um aðstoð í skattamálum. Þessi samningur var upphaflega undirritaður árið 1972 og veitti Alþingi þá ríkisstj. heimild til að fullgilda hann. Síðan var staðfestur viðbótarsamningur við aðstoðarsamninginn 1977.

Þær breytingar, sem hér er gert ráð fyrir að verði á þessum samningi, lúta annars vegar að upplýsingarskyldu varðandi eignarhald á fasteignum og hins vegar að ráðstöfunum til tryggingar greiðslu á skattkröfum.

Fjh.- og viðskn. leggur einróma til að ríkisstj. fái þessa heimild og staðfesti þennan viðbótarsamning í framhaldi af því.