23.03.1982
Sameinað þing: 67. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3183 í B-deild Alþingistíðinda. (2791)

234. mál, bókasafn Landsbankans og Seðlabankans

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseti. Ég vil taka það fram að starfsmenn Seðlabankans eru ekki ráðnir af ráðninganefnd ríkisins. Starfsmenn bankanna eru ekki ráðnir af ráðninganefnd ríkisins og þessir starfsmenn að sjálfsögðu ekki heldur.

Það kom hér fram að þeir aðilar, sem þarna starfa, hafi ótakmarkaðar heimildir, til að kaupa bækur. Þetta er alrangt. Þeir hafa engar ótakmarkaðar heimildir til að gera slíkt. Þeir hafa engar heimildir til að ráðskast með fé eins og þeim sýnist.

Aðalatriðið er þetta: Er eðlilegt að stofnanir eins og Seðlabankinn og Landsbankinn, sem er elsti banki þjóðarinnar, varðveiti slíkt safn sem þetta? Það tíðkast í nágrannalöndunum, svo að vitnað sé í þau, þó að ekki eigi að byggja allt á þeim. T.d. er bókasafn seðlabankans þýska álíka að vöxtum og Landsbókasafnið íslenska. Það er vegna þess að í þá stofnun hefur safnast mikið af heimildum sem ákveðið er að varðveita með skipulegum hætti. Í vörslu bankanna hefur komið mikið af tímaritum og alls konar gögnum sem hefur verið byggt utan um. Það hefði kannske verið miklu eðlilegra að henda þessu öllu saman. Ég er ekki þeirrar skoðunar. Það á að sjálfsögðu að varðveita þetta og það á að gera það heillegt svo að það nýtist þjóðfélaginu í heild og hægt sé að nota það með skipulegum hætti.