19.04.1982
Neðri deild: 65. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3944 í B-deild Alþingistíðinda. (3440)

211. mál, verðlag og samkeppnishömlur

Frsm. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um breytingu á lögum um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti. Í því sambandi fékk hún til fundar við sig verðlagsstjóra, fulltrúa frá Verslunarráði og Sambandi ísl. samvinnufélaga.

Skriflegar umsagnir bárust frá Sambandi ísl. samvinnufélaga, Félagi ísl. stórkaupmanna, Verðlagsstofnun og Kaupmannasamtökum Íslands og eru allar þessar umsagnir birtar með nál.

Eins og fram kemur í nál. undirrituðu Sighvatur Björgvinsson, Matthías Bjarnason, Matthías Á. Mathiesen og Albert Guðmundsson nál. með fyrirvara og áskilja sér þar að auki rétt til að flytja eða fylgja öðrum brtt., nefndin flytur sameiginlega, þ. á m. brtt. á þskj. 375.

Þær brtt. sem nefndin flytur sameiginlega, eru á þskj. 631. Það er í fyrsta lagi við 1. gr. b. Þar er fjallað um þriggja manna nefnd, en nánar er gert ráð fyrir í 2. gr. hvar skuli vera hennar störf og valdsvið. Í þessari brtt. kemur fram að óheimilt sé að aðilar, sem eiga sæti í verðlagsráði, sitji í þessari þriggja manna nefnd.

Það kemur fram í frv. að verðlagsráð getur að meira eða minna leyti falið þriggja manna nefndinni og Verðlagsstofnun ákvörðunarvald sitt eftir afmörkuðum reglum. Er þá haft í huga að verlagsráð geti falið þessari svokölluðu þriggja manna nefnd ákvörðunarvald í öllum minni háttar málum og málum sem ekki er talin ástæða til að vera ávallt að fjalla um í verðlagsráði. Ýmsir hafa óttast að með þessari skipan mála gæti vald verðlagsráðs flust að meira eða minna leyti yfir í þessa þriggja manna nefnd, sem alls ekki er hugmyndin með frv. þessu, heldur var hugmyndin með þriggja manna r.efndinni eingöngu að þeir aðilar, sem þar sætu, hefðu tækifæri til að fylgjast með undirbúningi mála og auk þess gæti nefndin tekið ákvarðanir í málum sem þyrftu skjótrar úrlausnar við. Til þess að gera þetta ljósara hefur nefndin lagt til að allir nefndarmenn verði að samþykkja slíkar ákvarðanir. Hefur það því í för með sér að ef allir nefndarmenn samþykkja ekki verður að skjóta málinu til verðlagsráðs.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að gera frekari grein fyrir þessu frv. Með því er stefnt að því að verðlagsráð geti gefið samkeppni frjálsa í vissum greinum. Einnig er gert ráð fyrir því, að Verðlagsstofnun fylgist náið með og hafi eftirlit með slíkri frjálsri verðlagningu. Tel ég að þetta sé sjálfsögð og mikilvæg tilraun til þess að auka frjálsræði í verðlagsmálum hér á landi, enda er gert ráð fyrir því í þessu frv., að Verðlagsstofnunin hafi fullt eftirlit þar með.

Ég vil að lokum endurtaka að nefndin leggur til að þetta frv. verði samþykkt, en nokkrir nm. hafa áskilið sér rétt til að flytja eða fylgja brtt. sem þeir munu gera nánari grein fyrir.