03.05.1982
Neðri deild: 78. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4495 í B-deild Alþingistíðinda. (4249)
178. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Halldór Ásgrímsson:
Herra forseti. Ekki út af máli þessu, heldur aðeins út af orðum hv. þm. Halldórs Blöndals vil ég taka það fram, að við höfum átt hið besta samstarf í nefndinni, þm. allra flokka, og við höfum lagt okkur fram um að afgreiða mál. Ég hef ekki fyrir mitt leyti haft á móti því, að eitt einasta mál væri afgreitt, enda sést á borðum nm. að sum mál hafa verið afgreidd undanfarna daga með minnihlutaáliti og meirihlutaáliti. En ég vil þó taka fram að það eru um það bil 50 mál sem nefndin hefur haft til afgreiðstu á þessu þingi og með öðrum nefndarstörfum undanfarna daga, m.a. í atvmn., er ekki hægt að ætlast til þess að menn geti afgreitt hvert einasta mál svo að víðhlítandi sé. Við höfum reynt að hafa þá reglu að afgreiða ekki mál nema hafa lagt í þau sæmilega vinnu, þannig að verjandi sé. Ég skal hins vegar taka það fram, að það hefði mátt leggja heldur meiri vinnu í það mál, sem hér er til umr. En ég vít sem sagt undirstrika að það hefur ekki staðið á mér né öðrum nm. almennt að afgreiða mál.