07.05.1982
Neðri deild: 88. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4908 í B-deild Alþingistíðinda. (4682)
299. mál, ábyrgð vegna norrænna fjárfestingalána
Frsm. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um ábyrgð vegna norrænna fjárfestingarlána til verkefna, en þar er um það að ræða að ríkisstj. fyrir hönd ríkissjóðs sé heimilt að ábyrgjast hluta Íslands í þessu sambandi, allt að fjárhæð 2 millj. 830 þús. SDR, gagnvart Norræna fjárfestingarbankanum vegna fjárfestingalána og ábyrgða til verkefna. Hér er um að ræða norrænan útflutningslánasjóð einkum sem stendur til að komið verði á fót frá og með 1. júlí 1982.
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fjalla frekar um þetta mál hér. Það hefur verið gert víð 1. umr. málsins. Ég vil aðeins taka það fram, að nefndin leggur til einróma að frv. verði samþykkt.