31.01.1983
Efri deild: 33. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1609 í B-deild Alþingistíðinda. (1368)
80. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Guðmundur Bjarnason:
Herra forseti. Sjútvn. Ed. hefur fjallað um frv. til l. um breytingu á lögum n. 5 frá 13. febr. 1976, um útflutningsgjald af sjávarafurðum, með síðari breytingum. Frv. þetta fjallar um breytingar sem varða afurðir sem unnar eru úr kolmunna til manneldis.
Hér er um mjög þýðingarmikið mál að ræða. Hér er um að ræða tilraunaveiðar, sem nú eru stundaðar, á kolmunna.
Nefndin varð sammála um að mæla með samþykkt þessa frv., þó með þeirri breytingu, að nánar væri skilgreint eða fram tekið hversu lengi þetta skyldi standa, til hvaða afurða það skyldi ná og á hvaða tíma.
Eins og segir í nál. varð nefndin sammála um að flytja brtt. við 3. gr., en þar segir í frv.: „Lög þessi öðlast þegar gildi“. Brtt. fjallar um viðbót, sem hljóði svo: „og taka ákvæði þeirra til landaðs afla á árunum 1982, 1983 og 1984“, þ.e. á þeim tíma sem við teljum að muni með réttu geta talist tilraunatími varðandi þessar veiðar.
Undir þetta nál. skrifa Stefán Guðmundsson, sem er formaður nefndarinnar og frsm. líka, en því miður forfallaður, Guðmundur Bjarnason, Egill Jónsson, Guðmundur Karlsson og Geir Gunnarsson, en fjarverandi við afgreiðslu málsins voru Karl Steinar Guðnason — stendur nú reyndar í nefndarálitinu Karl H., en er prentvilla eins og menn vita — og Gunnar Thoroddsen.