08.03.1983
Sameinað þing: 61. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2688 í B-deild Alþingistíðinda. (2537)

186. mál, rannsóknir í þágu atvinnuveganna

Frsm. (Guðmundur Bjarnason):

Herra forseti. Fjvn. hefur tekið til meðferðar till. til þál. um stefnu í rannsóknum og þróunarstarfsemi í þágu atvinnuveganna. Þar segir: „Með hliðsjón af líklegum breytingum í atvinnulífi landsmanna á næstu árum og nauðsyn þess að stuðla að farsælum efnahagslegum og félagslegum framförum, álykti Alþingi að efla beri rannsóknir og þróunarstarfsemi í þágu atvinnuveganna“. Einnig segir að í þessu skyni álykti Alþingi „að langtímaáætlun Rannsóknaráðs ríkisins um rannsóknir og þróunarstarfsemi í þágu atvinnuveganna 1982–1987 skuli höfð til hliðsjónar við mótun langtímastefnu í þessu efni“.

Fjvn. hefur fjallað ítarlega um þessa langtímaáætlun og m. a. rætt við framkvæmdastjóra Rannsóknaráðs ríkisins, svo og fulltrúa frá einstökum rannsóknastofnunum atvinnuveganna. Eftir þessa umfjöllun varð n. sammála um afgreiðslu málsins, eins og fram kemur í nál. á þskj. 476, en þar segir:

„Nefndarálit

um till. til þál. um stefnu í rannsóknum og þróunarstarfsemi í þágu atvinnuveganna.

Nefndin hefur fjallað um málið og mælir með samþykkt þess.“

Undir þetta rita allir hv. fulltrúar í fjvn.