18.10.1982
Efri deild: 3. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í B-deild Alþingistíðinda. (31)

11. mál, orkulög

Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Það er eitt atriði í ræðu hv. 4. þm. Vestf. sem er ástæða til að ég svari hér. Það varðar stjórn Orkustofnunar. Hún er vlð lýði. Hún hefur verið endurskipuð til árs. Hana skipa Ég ill Skúli Ingibergsson, fyrrv. borgarstjóri og framkvæmdastjóri Kísilmálmvinnslunnar h.f., formaður, og með honum eru í stjórninni Kristmundur Halldórsson deildarstjóri í iðnrn. og Sveinbjörn Björnsson prófessor við Háskóla Íslands. Þessir þrír menn hafa starfað frá því að þessi stjórn fyrst var skipuð, að ég hygg snemma árs 1981, án þess að ég vilji fara nákvæmlega með það. Ég tel að af starfi hennar hafi verið verulegt gagn fyrir rn. og eins fyrir Orkustofnun, sem er verkefni stjórnarinnar að fjalla um. Stjórnin hefur átt samstarf við stofnunina og forsvarsmenn hennar og starfsfólk þar almennt og þar hafa orðið verulegar breytingar innan veggja, einnig skipulagsbreytingar, á þessu tímabili sem hafa leitt til betra og markvissara starfs að mínu mati hjá Orkustofnun.