Háskóli Íslands.
Mörður Árnason (Sf) (um atkvæðagreiðslu):
Forseti. Hér er verið að stíga skref í átt til skólagjalda í ríkisháskólunum og nú ætlar hæstv. ríkisstjórn enn fremur að skattleggja nemendur í Háskóla Íslands, Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Akureyrar um samtals 140 millj. kr. á sama tíma og hátekjumönnum er heitið skattalækkunum. Þetta er ósanngjörn skattlagning og vond pólitík og við samfylkingarmenn segjum nei við þessu frumvarpi.
Forseti. Þá er komin upp sú sérkennilega staða að þingmaður sem hefur lýst því opinberlega að hann ætli ekki að styðja þetta mál, hefur ritað nafn sitt undir nefndarálit þar sem þingheimur er hvattur til að samþykkja frumvarpið. Meðal annars þess vegna óska ég eftir nafnakalli við fyrstu atkvæðagreiðslu hér á eftir um efnisatriði málsins.