Samræmd próf í grunnskólum.
Jóhann Ársælsson (Sf):
Hæstv. forseti. Ég varð fyrir vonbrigðum með svar hæstv. ráðherra. Hún sagði að það væri gott að taka þessa umræðu. Hér er hins vegar vel rökstudd tillaga og ég hefði talið fulla ástæðu fyrir ráðherra til að lýsa því hér yfir að hún mundi skoða þessi mál vandlega. Þarna er fagfólk að fjalla um mál og alveg full ástæða er til að hlusta á það og fara yfir málin að nýju þegar svo vel er rökstutt að ástæða sé til að skoða þessi mál. Það er t.d. orðið alveg ljóst að þessi samræmdu próf stýra áherslum í skólastarfi, og miklu meira en heppilegt er að margra fagmanna mati.
Ég held þess vegna að hæstv. ráðherra ætti að skoða þetta mál með bestu sérfræðingum sínum og fara yfir það hvort ekki sé ástæða til að gera þarna verulegar breytingar á.