132. löggjafarþing — 60. fundur,  7. feb. 2006.

Hlutafélög.

461. mál
[18:16]
Hlusta

viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli sem viðskiptaráðherra fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 2/1995, um hlutafélög, með síðari breytingum, og frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 138/1994, um einkahlutafélög, með síðari breytingum. Hér er um upplýsingaákvæði að ræða.

Framangreind frumvörp sem bæði eru samin í viðskiptaráðuneytinu eru byggð á ákvæðum um skyldu til upplýsingagjafar í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/58/EB frá 15. júlí 2003 um breytingu á tilskipun ráðsins 68/151/EBE að því er snertir birtingarskyldu félaga af tiltekinni gerð. Nánar tiltekið er um það að ræða í tilskipuninni að ríkið skuli kveða á um að tilteknar lágmarksupplýsingar skuli birta á vefsíðu hlutafélaga, þar á meðal samlagshlutafélaga, og einkahlutafélaga. Að mestu leyti byggist framangreind tilskipun, sem varðar breytingar á 1. félagaréttartilskipuninni frá 1968, á rafrænni skráningu upplýsinga í hlutafélagaskrá. Fjármálaráðherra ber ábyrgð á skráningarákvæðum laga um hlutafélög og einkahlutafélög og er gert ráð fyrir að hann leggi fram sérstök frumvörp um það efni.

Í báðum frumvörpunum er gert ráð fyrir að nýr málsliður bætist við á grundvelli tilskipunarinnar þannig að tilteknar upplýsingar um hlutafélög, einkahlutafélög og útibú þeirra, þ.e. heiti, kennitölu, heimilisfang, skráningarnúmer og jafnvel hlutafé, skuli ekki aðeins greina á bréfsefni, pöntunareyðublöðum og svipuðum skjölum heldur einnig á heimasíðu félags, sbr. 8. mgr. 1. gr. laga um hlutafélög og 7. mgr. 1. gr. laga um einkahlutafélög. Jafnframt er gert ráð fyrir að sama gildi um upplýsingar um gjaldþrotaskipti eða félagsslitameðferð ef um slíkt er að ræða. Þá eru gerðar nauðsynlegar breytingar á refsiákvæðum.

Hæstv. forseti. Ég mælist til þess að þessum frumvörpum verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. efnahags- og viðskiptanefndar.