132. löggjafarþing — 63. fundur, 9. feb. 2006.
Stefnumótandi byggðaáætlun 2006--2009.
391. mál
Hæstv. forseti. Eins og hæstv. iðnaðarráðherra kallaði hér fram í hefur hún aldrei sagt að það hafi verið stoppað af ráðherrum Sjálfstæðisflokksins að samþykkja slíka tillögu, þannig að hér er hv. þm. Kristján Möller að gera henni upp orð. Ég er hins vegar ekki til frásagnar um hvernig þessi vinna hefur farið fram eða hvar hún er stödd en væntanlega kemur í ljós hvort einhverjar slíkar tillögur eiga eftir að koma fram. Eins og ég sagði áðan mundi ég styðja slíka tillögu.