fjárlög 2008.
Hæstv. forseti. Það er rétt að sveitarfélögin gátu nýtt sér forkaupsrétt sem þeim var áskilinn í reglum sem um þetta giltu en að því leyti sem hæstv. fjármálaráðherra réði einhverju um þessi mál og að því leyti sem einkavæðingardeild Sjálfstæðisflokksins kom að málinu var reynt að sporna gegn því að aðrir en einkaaðilar fengju að eignast þann hluta. Það er nokkuð sem við skulum ekki gleyma, að einkavæðingardeild Sjálfstæðisflokksins stjórnast af hugmyndafræði og ótrúlegri þjónustulund við fjárfesta á markaði. Ásetningurinn er sá að koma orkugeiranum í einkahendur.
Minnumst samþykktar þings Sjálfstæðisflokksins sem haldið var í aðdraganda síðustu kosninga. Þar kom þessi ásetningur fram. Þar var reynt að drepa málinu á dreif vegna þess að vitað var að þjóðinni félli það almennt ekki í geð og úr þessu urðu fremur loðmullulegar misvísandi yfirlýsingar. Sama gildir um heilbrigðisgeirann. Menn vissu að málið þoldi ekki mikla umræðu og var ekki líklegt til að afla flokknum mikils fylgis ef það kæmist í hámæli hver raunverulegur ásetningur Sjálfstæðisflokksins er þegar heilbrigðisþjónustan er annars vegar.
Ég tel mikilvægt að við höfum í huga að þessi flokkur, sérstaklega einkavæðingarhluti hans sem ræður því miður of miklu í flokknum, lætur ekki stjórnast af rökum eða skynsemi heldur einvörðungu af hagsmunum. Það eru hagsmunir peningamannanna sem ráða og við erum að verða vitni að því á mjög dapurlegan hátt í Reykjavík.