135. löggjafarþing — 33. fundur,  29. nóv. 2007.

fjárlög 2008.

1. mál
[23:16]
Hlusta

Kolbrún Halldórsdóttir (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Varðandi álit minni hluta menntamálanefndar þá erum við þrjú sem skrifum undir það, þ.e. ég og hv. þingmenn Katrín Jakobsdóttir og Höskuldur Þórhallsson. Ég tók það fram í ræðu minni að skólamálin yrðu meira á könnu hv. þm. Katrínar Jakobsdóttur, þannig að ég fór ekki í smáatriðum yfir það álit en hv. þingmaður hlýtur að hafa kynnt sér það. Ég geri ráð fyrir að það hafi a.m.k. verið litið yfir það í nefndinni þó svo að ég hafi ekki talið ástæðu til að fylgja því sérstaklega eftir með heimsókn minni til nefndarinnar. Mér þykir mjög miður ef það hefur ekki verið lesið yfir eða litið yfir það þó að ég hafi ekki viljað koma til að lesa það fyrir hv. nefndarmenn. Þar er getið um ákveðna hluti. Þar er t.d. auk Listasafns Íslands getið um Listasafn ASÍ, Nýlistasafnið og Listasafn Sigurjóns Ólafssonar. Meiri hlutinn er að bæta inn á þessar stofnanir. Þar er getið um það að umboðsmaður Alþingis sé að átelja ríkisstjórnina fyrir að vera að gera samninga um alla skapaða hluti sem stendur í lögum að eigi að gera. Þar eru fleiri athyglisverðir hlutir sem ég get ekki farið yfir hér og ég geri ráð fyrir að Katrín Jakobsdóttir muni fara yfir.

Varðandi það að ekki sé getið um einhverja þætti í minnihlutaálitinu sem eru í meirihlutaálitinu, þá vil ég segja að minnihlutaálitið byrjar á því að segja að við lýsum yfir stuðningi við allt sem er í meirihlutaálitinu. Við erum sammála öllu sem meiri hlutinn segir en hann var ekki tilbúinn til að segja allt sem við sögðum. Það er ekkert tortryggilegt í þessum efnum þó að við séum með sérálit. (Gripið fram í.) Það er fyrsta línan í inngangi.

Varðandi verkefnin sem fjárlaganefnd bætti inn á safnliðina án þess að kalla nefndirnar aftur að borðinu, þá gildir það ekki bara um menntamálanefnd heldur líka um umhverfisnefnd. Þar er bætt inn liðum, meira að segja 8 millj. kr. á svifryksmæli á Akureyri sem er hæsti einstaki liðurinn í safnliðum umhverfisráðuneytisins. (Forseti hringir.) Um það fékk umhverfisnefnd ekki nokkurn skapaðan hlut að segja og sá ekki þá umsókn.