135. löggjafarþing — 52. fundur,  23. jan. 2008.

störf þingsins.

[13:49]
Hlusta

Sigurður Kári Kristjánsson (S):

Frú forseti. Það er ekki rétt sem hv. þm. Birkir Jón Jónsson segir, að þeir sem hafa varpað fram hugmyndum um annað fyrirkomulag á fasteignalánamarkaði, eins og ég hef t.d. gert, hafi horn í síðu Íbúðalánasjóðs. Íbúðalánasjóður hefur staðið sína plikt ágætlega í því lagaumhverfi sem hann hefur starfað í og þar starfar ágætt fólk.

Hv. þingmaður nefndi að Íbúðalánasjóður — eða Íbúðalánasjóður fólksins eins og formaður Framsóknarflokksins kallar hann — hefur notið vinsælda og stuðnings almennings. Og það er auðvitað alveg eðlilegt. Það er eðlilegt að þeir sem bjóða upp á lægstu vexti njóti vinsælda. Það er eðlilegt að þeir sem bjóða upp á bestu kjör á hvaða markaði sem er séu vinsælir, eins og t.d. á matvörumarkaði.

Það þýðir hins vegar ekki að við getum ekki komið fram með hugmyndir sem kunna að leiða til breytinga sem eru til batnaðar. Ég bendi á að Íbúðalánasjóður er náttúrlega ekkert annað en ríkisbanki. Framsóknarflokkurinn stóð að því með okkur sjálfstæðismönnum að einkavæða ríkisviðskiptabankana og ég hef sjálfur velt því upp hvort það sé eðlilegt að ríkið starfi á fasteignalánamarkaði. Ég velti því fyrir mér hvort samkeppni milli einkaaðila og ríkis á þeim markaði geti nokkurn tíma talist sanngjörn eða eðlileg.

Menn eiga að skoða allar þær hugmyndir sem fram koma um breytingar á þeim markaði með opnum huga, t.d. að breyta bankanum í heildsölubanka eða draga hann út af þeim mörkuðum sem einkaaðilar sinna. Við getum líka velt því fyrir okkur hvort ástæða sé til þess að haldið sé úti heilli stofnun til að sjá um þessa lánaumsýslu eða hvort ástæða sé til að útvista henni til einkaaðila þrátt fyrir að ríkið komi með einhverjum (Forseti hringir.) hætti að lánastarfseminni. Slíkar hugmyndir (Forseti hringir.) þýða ekki að við sjálfstæðismenn höfum horn í síðu Íbúðalánasjóðs eins og hv. þingmaður fullyrti hér.