135. löggjafarþing — 62. fundur,  7. feb. 2008.

tilkynning.

[10:31]
Hlusta

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill láta þess getið að í dag verða tvær utandagskrárumræður. Hinn fyrri verður nú að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma og er um háhraðatengingar og starfsemi Fjarskiptasjóðs. Málshefjandi er hv. þm. Valgerður Sverrisdóttir. Samgönguráðherra, Kristján L. Möller, verður til andsvara.

Hin síðari fer fram kl. 13.30 miðdegis, að loknu hádegishléi, og er um einkarekstur og útvistun á starfsemi Landspítala. Málshefjandi er hv. þm. Ögmundur Jónasson. Heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, verður til andsvara. Umræðurnar fara fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og standa í hálfa klukkustund hvor.