grunnskólar.
Frú forseti. Ég vil ekki sleppa hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni alveg með þetta svar vegna þess að ég held að við séum kannski minna ósammála um þetta en mætti ætla, þ.e. um það hver lokaniðurstaðan ætti að verða en ekki kannski alveg um markmiðin. Því langar mig til að spyrja hv. þingmann í framhaldi af þessu hvort hann telji það vænlegt til þess að stuðla að þeirri hófsemd og sátt sem þarf að ríkja í samfélaginu um hófsemi í umræðu um trúarbrögð að við stígum nú með freklegum hætti á hina fornu arfleifð og á tilfinningar þess fólks sem er fætt í þessu landi þar sem kristin trú hefur verið höfð að leiðarljósi í þúsund ár. Hvort það sé vænlegt til þess að hér ríki það sama umburðarlyndi í þessum efnum og ríkt hefur hér á landi vegna þess að það er ástæða til að hafa það í huga að við Íslendingar erum í þessum efnum mjög gæfusöm þjóð. Það er ekki sjálfgefið. Í heiminum, í sögunni og raunar í samtímanum líka er mjög stór hluti mannkyns sem býr við mjög óheppilegar afleiðingar trúarbragða í formi þess ofstækis sem þau geta oft og einatt leitt af sér. Uppskriftin að því ofstæki er einmitt sú að við tökum ekki tillit til hófsamra og eðlilegra skoðana og eðlilegrar trúariðkunar og berum ekki virðingu fyrir þeim.