aukinn þorskafli á fiskveiðiárinu 2008--2009.
Frú forseti. Það er ótrúlegt að hlusta á hv. þingmann segja þetta. Frelsi, þetta var nefnilega ekki frelsisskerðing. Það var frelsisskerðing að setja kvótakerfið á. Það var frelsisskerðing. Þeir sem hafa talað um frelsi til athafna og gjörða æðioft og oft á hátíðisdögum, það er ekki frelsi sem þeir buðu mönnum upp á þegar þeir tóku og ákváðu að kvótasetja allar fisktegundir. Það er alveg þveröfugt. Það var tekið frelsi af mönnum. Frjálsræði manna var tekið. Atvinnufrelsi manna var tekið og atvinnuréttur og færður fáum útvöldum. Þeir sem vildu halda áfram að gera út, vera í útgerð og vinna við það sem þeir voru búnir að læra til, hvort sem það voru skipstjórnarmenntaðir menn eða vélstjóramenntaðir menn, þeir áttu ekki frelsi. Þeir þurftu að borga. Þeir voru orðnir leiguliðar og voru í því hlutverki að leigja veiðiheimildir af mönnum sem fengu þær gefins ókeypis frá ríkinu. Þær voru afhentar af ríkinu fáum útvöldum sem leigðu svo öðrum það. Þegar frjálsa framsalið var sett á 1991 þá byrjuðu þessi ósköp að menn fóru að verða leiguliðar og lénsherrar og sumir stunduðu ekki fiskveiðar. Þeir bjuggu úti á Flórída eða úti á Spáni og leigðu veiðiheimildirnar sínar af því að þeir höfðu meira fyrir það. Í dag er verð á mörkuðum fyrir þorsk 300–350 kr. En menn borga í leigu 280–290 kr. Þetta er ekki kerfi sem er heilbrigt. Ég þekki til framsóknarmanna og gömlum framsóknarmönnum hefði ekki líkað að þurfa að borga bróðurpartinn af rollunni til að fá að selja dindilinn eða eitthvað svoleiðis.