kolvetnisstarfsemi.
Herra forseti. Ég nefndi það sérstaklega í ræðu minni áðan að allar þær breytingar sem urðu til í meðförum nefndarinnar hafi verið til hins betra, einfaldlega vegna þess að málið var illa unnið af hálfu iðnaðarráðuneytis og þurfti að gera á því verulegar breytingar og hefði mátt gera þær fleiri til þess að málið yrði enn betra.
Það er nú þetta sem menn þurfa að hugsa um þegar þeim hleypur kapp í kinn, þ.e. að það þarf líka að vanda sig. Það þarf líka að vanda sig og taka þann tíma sem þarf til þess. Það ættu talsmenn samræðustjórnmálanna að vita.
Það er engin nauður sem rekur menn til að afgreiða þetta núna korteri fyrir jól. Það er langt í frá. Það var upplýst á fundum nefndarinnar að töfradagsetningin 15. janúar er nú ekki svo nálæg í tíma sem halda mætti vegna þess að ef útboð verða þá auglýst tekur við þriggja mánaða útboðstími sem þýðir að tilboð ættu að berast einhvern tímann fyrir lok apríl. Þá tekur við þriggja til fjögurra mánaða tími til að meta þau tilboð. Menn eru ekkert að falla á neinum tíma. Það vekur, eins og ég sagði áðan, spurningar um það hvort menn séu að eltast hér við einhvern hégómleika.
Ég tek fram að það var mælt fyrir þessu máli 3. desember. (Gripið fram í.) Það kom til umfjöllunar í nefnd með umsögnum 10. desember. Samband íslenskra sveitarfélaga gerði strax athugasemdir þegar málið kom fram og fékk svo (Forseti hringir.) innan við viku til þess að gera formlega umsögn.