hlutur kvenna í stjórnmálum.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Siv Friðleifsdóttur fyrir fyrirspurnina og mér finnst hún sýna hversu gríðarlegt langtímaverkefni það er að hagga valdahlutföllunum í samfélaginu og einmitt í gegnum átaksverkefni næst árangur sem síðan hopar. Það er auðvitað áhyggjuefni sem við þurfum að velta fyrir okkur.
Við í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði höfum farið þá leið að vera með fléttulistafyrirkomulag innbyggt í forval okkar til að reyna að tryggja hlutfall kynjanna. Mér finnst að flokkar eigi að velta fyrir sér hvernig þeir geta stýrt þessu fyrirkomulagi vilji þeir fara prófkjöraleiðina, sem líka er umdeild af mörgum fyrir að vera ekki eins lýðræðisleg og virðist á yfirborðinu, og hygla sumum einstaklingum umfram aðra, t.d. út frá kyni. Konur virðast gjarnan koma verr út úr prófkjörum en karlar.
Mér finnst þetta vera mál sem stjórnmálaflokkarnir þurfa að velta fyrir sér en líka þarf að íhuga hvort ekki sé ástæða til að ráðast í annað eins átaksverkefni og ráðist var í 1999 og var nefnt áðan og skilaði árangri, (Forseti hringir.) þótt tímabundinn væri.