136. löggjafarþing — 98. fundur,  10. mars 2009.

hagsmunir Íslands í loftslagsmálum.

370. mál
[20:04]
Horfa

Forseti (Guðbjartur Hannesson):

Forseti vill upplýsa að 10. dagskrármálið, Hagsmunir Íslands í loftslagsmálum, er umræða sem fór fram fyrir helgi samkvæmt samkomulagi milli þingflokksformanna. Hluti af þeirri umræðu var látinn bíða þar sem hæstv. umhverfisráðherra var ekki viðstödd og átti eftir að flytja 10 mínútna ræðu. Hún mun verða flutt nú, samkvæmt samkomulagi, þannig að þetta komist inn í nefnd fyrir morgundaginn. Það er það sem fer fram hér en síðan höldum við áfram með stjórnarskipunarlögin.