136. löggjafarþing — 117. fundur,  30. mars 2009.

umræða um utanríkismál.

[16:07]
Horfa

Forseti (Guðbjartur Hannesson):

Forseti hefur svarað þessu og sagt frá því að fundurinn verði samkvæmt dagskrá eins og venja ber til þessa viku, þ.e. að við fundum hvern dag og tökum þau mál á dagskrá sem liggja fyrir þinginu og koma út úr nefndum. (Gripið fram í.) Þannig að talað er um að funda fram að helgi að minnsta kosti.

Forseti gaf út strax í upphafi að hér mundum við fyrst og fremst starfa eftir vetrarþingsreglum, sem eru um það að þing starfi til 4. apríl. Verði á því lenging verður það gert í samráði við formenn þingflokka og þingmenn. Ósk forseta er að þinginu ljúki í þessari viku en við skulum sjá hvað okkur endist tími til. Eindregnar óskir hafa komið fram um að við tökum um tíu skýrslur á dagskrá áður en þingi lýkur þannig að einsýnt er að við náum því ekki fyrir 4. apríl. Þá er það vilji þingsins að við verðum fram í næstu viku og forseti mun ekki skorast undan því. Þannig að það verður þá rætt af þingflokksformönnum.

Þetta er nýtt mál og kom ekki fram á formannafundi þingflokkanna í morgun. (Gripið fram í: Ég mótmæli því …) Þar kom fram að tvær skýrslur yrðu settar fram fyrir og aðrar yrðu hugsanlega látnar bíða enda er samkvæmt upplýsingum sem forseti hefur skoðað ekki skylt að taka þær skýrslur fyrir. Sé það þannig mun forseti að sjálfsögðu verða við þeim óskum að taka þær allar á dagskrá og setja þær skipulega inn þótt forseti verði að biðja þingmenn að virða það að hann getur ekki sagt úr ræðustóli hvenær það verður. Forseti ítrekar það að þingmenn eiga að vera hér til reiðu til að ræða málin á þeim tímum sem þingfundir eru.